Könnun

Á ekki að mæta á Fiskidaginn mikla á Dalvík í sumar?

Auglýsing

Klukkan

Ikkað skondið stuff!!

Ef þú skilur þetta ekki þá skiluru ekki neitt, skiluru það?! :p

Leikur dagsins

Nóg að gera!

26. september 2008 klukkan 15:13

Nú er búið að vera nóg að gera, erum ennþá að komast yfir þessa törn sem er búin að vera í gagni en þetta er allt að koma vonandi. Annars segi ég bara allt ágætt, það er bara fínt í skólanum, þarf reyndar að fara að sparka í rassinn á sjálfri mér aðeins núna, er nebblega komin solltið á eftir... Var samt að klára skýrslu sem þarf alltaf að skila eftir hvern vélstjórnartíma, vorum nebblega að setja í gagn gamla Deltu á mánudaginn, algjör snilld! Strákarnir sem ég er með í málmsmíði og málmsuðunni eru aðeins farnir að láta heyra í sér og láta mig vita af því að ég er eina stelpan í hópnum, við erum sko 2 stelpur með 22 strákum og við vorum settar í sitthvorn hópinn þannig að þeir eru aðeins að nýta sér það. Ég er farin að heyra setningar eins og: "já, sýndu það að þú sért kvennmaður!" , "stelpur eru óttalegir hlutir!" og svo framvegis... held að ég þurfi nú aðeins að fara að taka í hnakkadrambið á þessum gaurum! Svalur
En annars verð ég að vinna um helgina, þannig að það verður nóg að gera!

Þetta er bara svona fljótfærnisblogg en ég vildi bara lofa ykkur að vita að ég er hérna ennþá og allt í gúddi!

Túrúlú!!

Kv: Nanna Þórey

Með sorg í hjarta...

15. september 2008 klukkan 18:09

Vá, ég veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja þetta blogg mitt...

Það er búin að ríkja mikil sorg í fjölskyldu minni þessa vikuna og á eftir að gera það í langan tíma, við fengum þær sorgar fréttir að morgni laugardagsinns 6.september að hún Þórey amma mín væri látin...

Það er engin að átta sig á þessu og allir eru svo dofnir og tómir.

Ég ætla að skrifa hér smá minningu um hana, því að ég er að hugsa svo mikið um hana núna og verð að koma þessu frá mér...


Elsku amma mín, nú ert þú farin frá okkur og enginn skilur afhverju.

Þú sem varst svo hress og kát á fimmtudagskvöldið, en það var í síðasta skiptið sem ég sá þig. En þú hringdir í mig á föstudagsmorguninn til að vekja mig því að þú varst komin í vinnuna og ég þurfti ekki að mæta í skólann fyrr en um hádegi. Þú varst alltaf vön að, bakna á hurðina mína, kíkja inn og vekja mig með þinni blíðu rödd... en ef ég var ekki alveg til í að fara á fætur strax þá þurftir þú nú aðeins að ræskja þig elskan, og auðvitað dreif ég mig á fætur því að afi var búinn að elda hafragraut og við borðuðum yfirleitt saman á morgnana áður en ég fór í skólann og þú í vinnuna þína. Við vorum búin að eiga svo frábærar stundir sama, þú, ég og afi í Skarðshlíðinni enn þetta er í annað skiptið sem ég bý hjá ykkur. Fyrst bjó ég hjá ykkur frá haustinu 2004 þegar ég byrjaði í Verkmenntaskólanum og þar til að ég hætti veturinn 2006 og fór aftur til Dalvíkur, en kom svo aftur til ykkar á ný á nýársdag á þessu ári því að ég fékk aðra vinnu hérna á Akureyri. Í vor ákvað ég svo að drífa mig í skólann aftur og það var svo gaman að sjá hvað þú varst ánægð og stolt af mér með þetta allt saman.
Elsku engillinn minn, þú varst alltaf svo hlý og góð við okkur öll og vildir alltaf gera allt fyrir alla ef þú mögulega gast það. Það var alltaf svo gott að getað leitað til þín, í þinn hlýja og mjúka faðm ef eitthvað var að og alltaf gátum við leyst þessi vandamál sem upp komu í sameiningu.
Elsku amma mín, ég er ekki að trúa því að þú sért farin, ég sem fékk ekki að kveðja þig, en ég hefði getað gert það ef ég hefði komið til þín í vinnuna á föstudaginn áður en ég fór til Dalvíkur og knúsað þig, en ég hugsaði með mér að ég myndi knúsa þig og kyssa þegar ég kæmi til ykkar aftur á sunnudagskvöldið. Þú og afi fóruð svo út í Rima sem er hjólhýsið út í Höfðahverfi þegar þú varst búin að vinna, en þangað fóruð þið nánast hverja einustu helgi og þar sofnaðir þú svefninum langa, það segja margir að þú hefðir varla getað fegnið betri stað til að sofna á og ég er sammála því, ykkur leið alltaf svo vel þarna. En núna ertu komin á góðann stað og langafi er örugglega ánægður með það að þú sért komin til hans þó svo að ekkert okkar sé sátt við þetta, og ég ætla að biðja þig um að knúsa hann afa Gústa frá mér og alla þá sem eru farnir frá okkur.
Nú verða allar minningar mínar um þig læstar að eilífu í harta mínu og ég mun aldrei, aldrei gleyma mér elsku amma mín. Ég sakna þín svo sárt og við öll, við stöndum öll sem klettar fyrir afa og langömmu og ég ætla mér að búa áfram hjá afa og vera honum innan handar. Við vitum öll að þú vakir yfir okkur, verndar okkur og leiðir og verður alltaf hjá okkur.
Mig langar að setja texta hérna með sem ég vil tileinka þér, en ég er búin að leita að honum út um allt en fékk svo hjálp frá góðum mönnum sem ég á ekki eftir að geta þakkað nóg.



Sól um nótt

Vertu mér sól um nótt
og ský á heiðum himni.
Tifaðu títt og ótt
taumlaust í sálu minni.
Vertu eitt og allt.
Ólga í mínum æðum.
Vertu mér sól um nótt.

Ég skal vera það sem þú væntir af mér.
Ég skal vera allt sem þú væntir af mér.

Vertu mitt eina skjól
þá er skyggja tekur.
Vertu undir vagn minn hjól.
Sú væra rödd sem vekur
mig að morgni dags.
Á meðan vindur næðir,
vertu mitt eina skjól.

Ég skal vera það sem þú væntir af mér.
Ég skal vera allt sem þú væntir af mér.

Þegar allt um þrýtur
vertu glóð sem vekur eld hjá mér.
Uns þá yfir lýkur
áttu mig ef eitthvað út af ber.

Vertu mér vin í neyð,
vindur í segli mínu,
varða á minni leið.
Markaðu mína línu.
Lóð á vogarskál
minna vona og drauma.
Vertu mér vin í neyð.

Ég skal vera það sem þú væntir af mér.
Ég skal ver allt sem þú væntir af mér.
        (Textahöf: Stefán Hilmarsson)

Takk fyrir allt elsku engillinn minn

Þín nafna

Nanna Þórey 







dúddúrú....

22. júlí 2008 klukkan 19:37
Jæja góðir hálsar og aðrir hálskyrtlar, þið verðið nú að fara að vera duglegri við að reka á eftir mér með að blogga, það væri líka fallega gert af þeim fáu sem kíkja hérna inn á þessa síðu að kvitta í gestabókina... hmmm skamm skamm!!
Nú er farið að styttast í þessu sumarfríi mínu og skólann líka, held að hann byrji 20asta og eitthvað... þannig að nú verður farið að taka all svakalega á því!!
Annars var hringt í mig úr vinnuni í dag og mér var boðið það að skipta af næturvöktunum og yfir á kvöld- og helgarvaktir, Heiðar náði að sannfæra mig með góðu spjalli og þáði ég skiptin auðvitað með þökkum, því allir vita sem reynt hafa að ekki fer marh blankur í skólann!
Ég er svo bara búin að vera að dunda mér hérna á Dalvíkinni, pabbi, Anna og dýrin koma svo vonandi við hérna seinni partinn í vikunni, þau ákváðu að skreppa í smá ferðalag, er ekkert búin að sjá þau síðan í fyrra sumar og það verður æðislegt að fá að knúsa þau aðeins Brosandi
Svo eru bara 3 helgar í Fiskidaginn, það eru farin að berast blöð í gegn um lúgurnar með allskonar tilkinningum og fleiru, þetta verður bara stuð og fólk er farið að boða komu sína hingað til okkar í Mímisveginn, svo fer að styttast í að allir fari að taka til í görðunum hjá sér, gera allt fínt og flott, ætli marh fari svo ekki að sjá skreytingar í enda næstu viku... eins og dalvíka máltækið segir: Allt í lag fyrir Fiskidag!! Glottandi
En jæja nú heyrist mér vera kominn kvöldmatur þannig að ég bið að heilsa ykkur í bili dúllurnar mínar!!

Kv: Nannza Koss

Sumarfrí!!!

11. júlí 2008 klukkan 16:46
Hvernig væri það nú að marh fari að láta heyra aðeins í sér hérna...ha?!
Ég er alla vega komin í 3 vikna sumarfrí og er mætt á Dalvík.
Ég, Frikka og Sigga kelltum okkur á Sálina þar síðustu helgi og það var alveg hrikalega gaman!! Svo var ég að vinna með Valda síðustu vaktvikuna fyrir frí því að Soffía er í sumarfríi og svo verður hún að vinna með honum líka á meðan ég verð í fríi. Er samt ekkert búin að ákveða hvað marh gerir af sér í fríinu, ætli ég liggi ekki bara með tærnar upp í loft Ullandi
Svo byrja ég að vinna aftur miðvikudaginn fyrir versló og þegar ég er búin með þá vaktviku þá byrja ég í fríi miðvikudaginn fyrir Fiskidaginn!!! Agalega er marh farin að hlakka til!!! Hlæjandi
En jæja þetta er nú allt það sem ég get sagt ykkur í bili...!

Kv: Nannza Glottandi

EUROBANDIÐ ÁFRAM!!! GEEEEÐÐÐÐVVVEEEIIIKKKTTTTT!!!!!

22. maí 2008 klukkan 21:28

Ég held að það sé ekki hægt að segja neitt annað en VVVVÁÁÁÁÁ FRIÐRIK ÓMAR OG REGÍNA ÓSK... ÞIÐ VORUÐ ÆÆÆÆÆÐÐÐÐÐIIIIISSSSSLLLLLEEEEGGGGG!!!!!!Díses ég sat svo stjörf yfir þessu öllu saman, það er frábært að sjá hvað þau voru með sjálfsöryggið í lagi og þau bókstaflega nelgdu þetta, svo var setið og beðið eftir því að sjá hvaða lönd kæmust áfram og ég vissi ekki hvert ég ætlaði þegar þau drógu Ísland út, veit ég það að þakið hefur gjörsamlega splundrast af Víkuröstinni út á Dalvík, það var sko skrúðganga og læti frá sparisjóðnum og að Víkuröst og þar komu allir saman og horfðu á herlegheitin á breiðtjaldi. Það er samt alveg hrikalega fúlt að vera að vinna þessa helgi því að marh getur ekki tekið þátt í gleðinni á Dalvík á laugardagskvöldið, marh er bara að missa af þessu öllu saman!! En jæja nú ætla ég að fara að taka mig til fyrir vinnuna, varð bara að koma þessari ólýsanlegu gleði minni á framfæri hér, og enn og aftir til hamingju Friðrik Ómar og Regína Ósk!!! Hlæjandi

Kv: Nannza

Föstudagskvöldið

17. maí 2008 klukkan 16:41

Góðan daginn hér! Jæja eins og ég sagði í gær þá stóðst það að ég myndi kíkja út á lífið, fór til Sigrúnar og þar sátum við og drukkum bjór og átum jellóskot, kíktum svo á barinn þegar klukkan var rétt farin að ganga 2 og vorum þangað til að Jói lokaði. Það voru nú samt ekki margir, það var eitthvað partý hjá kórnum sem mamma er í og voru flestar þeirra mættar þangað og svo voru bara svona hinir og þessir sem voru þarna líka. Ég og Sigrún dönsuðum solltið mikið sem endaði með dágóðum verkjum í fótunum þegar ég vaknaði í morgun og pínu þynnka til að bæta ofan á þetta líka.
Svo er planið að hitta Frikku og Dóru í kvöld og gera eitthvað af sér eins og vanalega þannig að það verður nóg að gera. Annars er ég bara búin að vera að rúnta í dag og kíkti svo aðeins á Gyðu og svoleiðis, svo þarf marh nállega að fara að plana dressið og allt það fyrir kvöldið. En jæja engar fleiri fréttir í bili! Takk og bæj!!

Kv: Nannza

Ahhh viku frí!

16. maí 2008 klukkan 16:43
Well well well, þá er ég komin í fríið mitt og er komin til dalvíkur. Hér er búið að vera alveg geggjað gott veður í dag, sól og blíða. Ég tók svo til í herberginu hérna í dag, þurkaði af og ryksugaði og mútta er búin að vera að missa sig í bakstri hérna líka Glottandi
Svo er ég farin að spá í  að skipuleggja ferð heim á höfn núna bráðlega í nokkra daga, er farin að þrá það að komast aðeins heim, frá öllu hérna fyrir norðan og fá að slaka aðeins á og vera með sjálfri mér.
Ég er svo að fara að hjálpa henni Frikku minni aðeins með afmælisveislu sem hún er að fara að halda fyrir dóttur sína, þar verða bara pizzur og læti.
Ætli það verði svo ekki kíkt eitthvað út á lífið um helgina, miðað við það sem ég hef heyrt þá er búið að pannta mig annað kvöld þannig að það verður ekkert elsku mamma með það neitt Hissa Ullandi
En jæja ég ætla að fara að gera einhvern and****ann af mér þangað til að ég fer í veisluna!!

Bæj í bili kv: Nannza

Flutningur

19. apríl 2008 klukkan 00:34
Jæja þá er þessi dagur á enda runnin, er búin að vera að hjálpa Elvari að flytja í dag, Eyþór og Frikka voru með í látunum líka. Núna á hann bara eftir að koma öllu dótinu sínu almennilega fyrir og svoleiðis, við máluðum svo eitt herbergi á miðvikudaginn og fórum með nokkra kassa og svo aðeins meira í gær og í dag var allt tæmt þannig að ég segi bara til hamingju með kotið dúllan mín Koss

Svo var auðvitað Bandið Hans Bubba í kvöld en ég var á fullu að hjálpa til við flutinginn þannig að ég gat ekki horft á, en við dalvíkingarnir erum mjög stolt af okkar manni, Arnar veitti honum auðvitað mjög harða keppni og stóðu þeir sig báðir mjög vel og ég óska Eyþóri að sjálfsögðu innilega til hamingju með þennan frábæra sigur!!! Brosandi

Annars gengur mjög vel í vinnuni hjá okkur Soffíu, við erum alveg að tækla þetta og skemmtum okkur alltaf konunglega á næturnar í búðinni. Fáum allskonar skemmtilegt fólk í  heimsókn og svoleiðis Glottandi

En jæja núna ætla ég að fara að lúlla, góða nótt alle sammen og dreymi ykkur vel Brosandi

Kv: Nannza

Long tima no blogg....

01. apríl 2008 klukkan 11:57
Jæja elskurnar, ég er á lífi, hef bara ekki nennt að blogga síðan ég var fyrir sunnan.
En allavega þá voru Sálartónleikarnir GEÐVEIKIR!!! Ég veit það að ef það hefðu verið aðrir tónleikar á laugardagskvöldinu þá hefði ég sko pottþétt farið aftur!!
Við kíktum svo á Nasa eftir tónleikana, þar var eftir partý, svo var stefnan tekin á Dubliner og við vorum ekki komin heim fyrr en um 6 leytið um morguninn, ég átti svo flug heim hálf 6 og ég var bákstaflega búin á því þegar ég kom heim...
Annars er voðalega lítið að frétta af mér, er bara að vinna aðra hverja viku og sonna, bara same old same old. Var að vinna alla páskana og get ekki beðið eftir því að fá útborgað næstu mánaðarmót, það verður bara heví næs!!! Gráðugur
En jæja þar sem ég hef ekki mikið meira að segja en þetta þá segi ég bara bæj í bili!!

Kv: Nannza

Borg óttans!!

13. mars 2008 klukkan 21:26
Jæja, þá er mín bara komin suður í borg óttans... flugið var bara fínt og allt gekk vel.
Núna er ég hérna heima hjá Jóni og Urra, Jón er reyndar farinn á dansæfingu og ég og Urri erum bara hérna í rólegheitum, erum svo að pannta okkur pizzu með svona ostafylltum kannti frá PizzaHutt mmmmmmm jammí jammí!!! Svo er aðallinn annaðkvöld, Sálartónleikarnir sem ég bara einfaldlega get ekki hætt að tala um.... ÉG HLAKKA SVO MIIIIIIIIIIIIIIIKIÐ TIL!!!!!!!
Ætla að kíkja í bæinn með Addý frænku á morgun og skreppa kannski í Kringluna eða eitthvað svoleiðis, svo verður marh nú að vera komin heim á góðum tíma svo að ég verði nú reddí fyrir lætin, ætla að reyna að draga strákana snemma af stað svo að við komumst pottþétt fremst!!
En jæja ég ætla að fara að gera eitthvað.... þó svo að ég viti nú ekki alveg hvað það á að vera... heeeeeyyy jú ég get prufað að labba einn hring hérna í hverfinu og gáð hvort að ég rata til baka eða hvort að mér hreinlega takist að týnas?? Hissa Ullandi
Bið að heilsa ykkur í bili!!!

Kv: Nannza

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...